fbpx

Tag Archives: almannatengsl

Gerum Kraftaverk – verkefna- og viðburðastjórnun

Gerum Kraftaverk - verkefna- og viðburðastjórnun, almannatengsl og markaðssetning

Viðburðastjórnun, almannatengsl og markaðssetning

Gerum Kraftaverk – verkefna- og viðburðastjórnun

Ég annaðist verkefna- og viðburðastjórnun fyrir Kraft, og tónleikana Gerum kraftaverk í ágúst og september. Ég aðstoðaði Kraft varðandi markaðsmál, auglýsinga og borðamál sem og fjölmiðlaumfjöllun og samskipti við fyrirtæki og einstaklinga.

Tónleikarnir voru haldnir 17. september 2014 og komu frábærir listamenn þar saman; Emiliana Torrini, Baggalútur, KK og Ellen, Amaba Dama, Abba Show og Ari Eldjárn. Sóli Hólm var kynnir kvöldsins og heppnaðist kvöldið alveg einstaklega vel. Uppsetningin og tímasetningin stóðst næstum fullkomlega og tókst skipulagið fullkomlega.

Allur ágóði af tónleikunum rann í neyðarsjóð Krafts fyrir ungt fólk með krabbamein. Tónleikarnir voru haldnir í Norðurljósasal Hörpu og komust færri að en vildu. Upphaflega settum við okkur að það kæmu um 500 manns en á tónleikadegi þurfti að stóla meira upp og í lokin þurftum við meira að segja að segja að tilkynna að það væri uppselt þar sem að við vorum þá komin með um 600 manns.

Einstaklega skemmtilegt verkefni sem gaman var að taka þátt í og gekk vonum framar.

Síðan komin í loftið – leitarvélabestun

laila.is

Laila, leitarvélabestun og vefsíðan

Vefsíðan www.laila.is fór fullkláruð í loftið í dag.

Auðvitað á ég eftir að vera fínpússa hana en það tekur alltaf tíma. Fókusinn er núna á leitarvélabestun (SEO) og skoða hvernig ég get látið síðuna birtast ofar í leitarniðurstöðum. Gaman að spá í því og fylgjast með henni þeysast upp vinsældalistann. Nú er bara að hefjast handa með næstu skref. En að sjálfsögðu er ég búin að vera skoða leitarvélabestunina líka á meðan ég hef sett efnið inn á síðuna.

Leitarvélabestun – næstu skref

  • Meta title – make sure title is clear - Primary Keyword – Secondary Keyword | Brand Name.  Best 50-60 characters
  • Meta Description – rougly 155 characters. What people see when they google you. - 10 to 25 words – what is this site about
  • Meta Keywords – find the focus keywords. What are the keywords you want to rank up in
  • Add H1 – with keywords
  • Page Title – up to 70 characters
  • Body Text – 200-800 words, and keyword phrases should appear up to 4 times
  • Keywords – add 5-50 words, include 1 to 15 keyword phrases and use them up to 3 times
  • Images – add keywords in image title- alt tag on images
  • Videos add keywords in video name and title – alt tag them
  • Sitemap – make sure sitemap is in place